18. júlí 2008 klukkan 14:20
Rölt um miðbæ Akureyrar í gær í ágætis veðri. Nokkuð margt fólk á ferli enda skemmtiferðaskip í höfn. Ferðamenn að taka myndir af Akureyrarkirkju, ljóta húsinu í hafnarstræti sem búið er að friða en enginn vill gera upp og póstkortum (til hvers að eyða pening í að kaupa póstkortin þegar þú getur tekið mynd af þeim?)
Fór með Fanneyju og í boði Fanneyjar að sjá Mama Mia! í bíó í gær. Gat helgið aðeins fyrir hlé en OMG var með kjánahroll nánast allan tíman og var farin að standa mig að því að halda fyrir augun þegar leið á sýninguna og tuldra fyrir munni mér..nei NEI, crap!
Þessa mynd ætla ég ekki að sjá aftur!
Sóley, ennþá með kjánahroll