Skautaferđ
20. janúar 2008 klukkan 12:25
Yfir rauðvínssulli og spjalli á föstudagskvöldið á Útsteini með Ásu, Fanneyju og Jóhönnu ákváðum við Ása að skella okkur á skauta á laugardag. Jújú við stóðum við það og fórum á skauta. Ég hef ekki farið á skauta í tottogu og fimm ár en var bara nokkuð góð (þó ég segi sjálf frá). Því þakka ég að á tímabili fór ég um laugarneshvefið á hjólaskautum. Vonir standa til að skella sér á svellið um næstu helgi og aldrei að vita nema að diskóskautar á föstudagskvöldið verði fyrir valinu!
Sóley Ögmundardóttir