Ađalvalmynd

Auglýsing

Krútt

27. október 2007 klukkan 18:40
 Ótrúlega sætt myndband af Arnóri Inga.

http://youtube.com/watch?v=EooVHFuoOZQ
Sóley Ögmundardóttir

Óhljóđ og fjárfestingar!!!

25. október 2007 klukkan 20:38
Ég heyri ekki í sjónvarpinu mínu fyrir óhljóðum sem berast úr nærliggjandi íbúð. Einhver borglaður þar á ferð. Kannski ég fari og finni mannin (eða konuna) með borin og biðji hann/hana um að bora fyrir speglinum mínum...hugmynd Ullandi


Ég er búin að fjárfesta í farartæki, bíl. Hann er ossa sætur, hvítur Skoda Fabia fæddur 2004.
                               

Sóley Ögmundardóttir

Ef hćgt er ađ fresta....

24. október 2007 klukkan 00:04
Það er eitt sem hefur háð mér síðan ég var krakki, ég get ómögulega gengið frá eftir mig jafnóðum. Þetta veldur því að það er mjög oft svona smáhlutir út um allt. Ég er líka alltaf að byrja á alskonar hlutum en hef ekki tíma til að klára (lesist: nenni ekki að klára). Fína borðstofu borðið mitt er t.d. yfirfullt af myndum sem ég ætlaði nú aldeilis að smella í albúm. Þær eru búnar að liggja þar í einhverjar vikur. Eins sendi móðir mín mig með fullan kassa af allskonar dóti norður sem hún var búin að tína til sem ég átti, "taktu þennan kassa eða ég hendi honum, og öllu sem í honum er." Kassinn var út í bíl í viku áður en ég bar hann upp, stóð á stofugólfinu í tvo daga áður en ég opnaði hann. Þá tíndi ég upp úr honum og lagði það frá mér þar sem ég stóð...

Sóley Ögmundardóttir

Afmćlisbarn dagsins!!!

22. október 2007 klukkan 22:44
Sóley Dögg ofurskvísa og krúsídúlla er 8 ára í dag.



TIL HAMINGJU MEÐ AFÆMLIÐ Koss
Sóley Ögmundardóttir

Babaram!

04. október 2007 klukkan 21:32
Vopnuð hamri tókst mér að setja hilluna saman alveg sjálf!!!

Hún er svo fín

                   

Sóley Ögmundardóttir

Pirrípú

02. október 2007 klukkan 22:26
Fékk loksins Ikea hilluna sem ég er búin að vera að bíða eftir í 3 vikur. Þar sem ekkert áhugavert er í imbanum ákvað ég að setja hana bara saman. Þeir sem þekkja mig vita að svoleiðis á að gerast kvisbambúm! Ég var því eilítið pirruð þegar þetta gekk ekkert, í klukkutíma reyndi ég að berja helv... hilluna saman það eina sem kom út úr því var marin lófi og stífur putti!! og hillan já hún er ennþá ósamsett Öskrandi

                      

Nú yfirstíg ég þrjóskuna og "éggetettasjálf" syndromið og bið um aðstoð.

Verð komin heim um áttaleytið annað kvöld Óákveðinn
Sóley Ögmundardóttir

Latibćr

01. október 2007 klukkan 22:03
Í dag söng ég í vinnuni hástöfum (eða þú veist næstum) 1-2-3 áfram Latibær...lalalalala... og ekki bara einu sinni eða tvisvar... Eins gott að ég gerði ekki dansin með!
Sóley Ögmundardóttir

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur