Ađalvalmynd

Auglýsing

Ţetta blogg er alveg ađ gefa upp öndina...

18. október 2008 klukkan 15:27
....fylgstu með!
Sóley Ögmundardóttir

Afmćlisbarn dagsins

23. júlí 2008 klukkan 23:51
Arnór Ingi er þriggja ára í dag!!!
Til hamingju með afmælið!

Sóley Ögmundardóttir

Sögur úr sumarfríi

18. júlí 2008 klukkan 14:20
Rölt um miðbæ Akureyrar í gær í ágætis veðri. Nokkuð margt fólk á ferli enda skemmtiferðaskip í höfn. Ferðamenn að taka myndir af Akureyrarkirkju, ljóta húsinu í hafnarstræti sem búið er að friða en enginn vill gera upp og póstkortum (til hvers að eyða pening í að kaupa póstkortin þegar þú getur tekið mynd af þeim?)


Fór með Fanneyju og í boði Fanneyjar að sjá Mama Mia! í bíó í gær. Gat helgið aðeins fyrir hlé en OMG var með kjánahroll nánast allan tíman og var farin að standa mig að því að halda fyrir augun þegar leið á sýninguna og tuldra fyrir munni mér..nei NEI, crap! 
Þessa mynd ætla ég ekki að sjá aftur!

Sóley, ennþá með kjánahroll


Sóley Ögmundardóttir

Langar einhverjum...

14. júlí 2008 klukkan 17:06
... í bíó, á kaffihús, að skreppa í sund, keyra hringinn, í gönguferð í kjarna eða listigarðinum, hvalaskoðun, keyra hringinn, skreppa út í Hrísey eða Grímsey...

Sóley sem finnst afskaplega erfitt að vera ein í sumarfríi
Sóley Ögmundardóttir

Sumariđ er tíminn...

20. apríl 2008 klukkan 23:02


Sóley Ögmundardóttir

Skautaferđ

20. janúar 2008 klukkan 12:25
Yfir rauðvínssulli og spjalli á föstudagskvöldið á Útsteini með Ásu, Fanneyju og Jóhönnu ákváðum við  Ása að skella okkur á skauta  á laugardag. Jújú við stóðum við það og fórum á skauta. Ég hef ekki farið á skauta í tottogu og fimm ár en var bara nokkuð góð (þó ég segi sjálf frá).  Því þakka ég að á tímabili fór ég um laugarneshvefið á hjólaskautum. Vonir standa til að skella sér á svellið um næstu helgi og aldrei að vita nema að diskóskautar á föstudagskvöldið verði fyrir valinu!

Sóley Ögmundardóttir

Punktablogg

13. janúar 2008 klukkan 13:37
Síðan síðast

* Sett upp jólaskrautið
* Hafa jólin komið og farið
* Skropið í borgarfjörð í mergjað "húsmæðraorlof"
* Sagt gleðilegt nýtt ár við ótrúlega marga
* Borðað yfir mig
* Séð sólina í fyrsta skipti í langan langan langan tíma og verið ótrúlega hamingjusöm með það
*Farið í mjög skemmtilegt sing-star eftirpartý
*Spilað Partý og co extream og unnið.... en líka tapað
* Farið á tónleika
* Verið í ótrúlega notalegu jólafríi
* Keyrt 1200 km á nýja árinu
* Gleymt að skipta um perur
* Fengið nytsamlegar jólagjafir
* Skráð mig á átaksnámskeið



Sóley Ögmundardóttir

Krútt

27. október 2007 klukkan 18:40
 Ótrúlega sætt myndband af Arnóri Inga.

http://youtube.com/watch?v=EooVHFuoOZQ
Sóley Ögmundardóttir

Óhljóđ og fjárfestingar!!!

25. október 2007 klukkan 20:38
Ég heyri ekki í sjónvarpinu mínu fyrir óhljóðum sem berast úr nærliggjandi íbúð. Einhver borglaður þar á ferð. Kannski ég fari og finni mannin (eða konuna) með borin og biðji hann/hana um að bora fyrir speglinum mínum...hugmynd Ullandi


Ég er búin að fjárfesta í farartæki, bíl. Hann er ossa sætur, hvítur Skoda Fabia fæddur 2004.
                               

Sóley Ögmundardóttir

Ef hćgt er ađ fresta....

24. október 2007 klukkan 00:04
Það er eitt sem hefur háð mér síðan ég var krakki, ég get ómögulega gengið frá eftir mig jafnóðum. Þetta veldur því að það er mjög oft svona smáhlutir út um allt. Ég er líka alltaf að byrja á alskonar hlutum en hef ekki tíma til að klára (lesist: nenni ekki að klára). Fína borðstofu borðið mitt er t.d. yfirfullt af myndum sem ég ætlaði nú aldeilis að smella í albúm. Þær eru búnar að liggja þar í einhverjar vikur. Eins sendi móðir mín mig með fullan kassa af allskonar dóti norður sem hún var búin að tína til sem ég átti, "taktu þennan kassa eða ég hendi honum, og öllu sem í honum er." Kassinn var út í bíl í viku áður en ég bar hann upp, stóð á stofugólfinu í tvo daga áður en ég opnaði hann. Þá tíndi ég upp úr honum og lagði það frá mér þar sem ég stóð...

Sóley Ögmundardóttir

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur